Föstudagurinn fyrir viku!!!!!!!!!!
Ég, Eva,Harpa,Inga,Guðrún,Kolbrún og Magga elduðum mat heima hja
mer og Evu og við spjölluðum og sötruðum langt fram á kvöld, kíktum
á idolið og tjúttuðum eitthvað
Síðan
fórum við uppá Players í kópavogi og það var óótrúlega gaman!!! við
vinguðumst við menn einungis yfir þrítugt því þeir eru ekki að
spara splæsin hehehh
Eftir
pleyersinn fórum við niðrí bæ og fórum fyrst á hverfis og dönsuðum
eins og brjálæðingar og síðan fórum við á pravda og héldum síðan
heim! Mjög gott kvöld!
Á miðvikudaginn seinasta!!!
Ég fór heim til Hörpu og við tvær stöllur vorum þar lengi vel og
gerðum okkur til og svoddan síðan fórum við til skötuhjúana Dabba
og Möggu , þar sem dabbi var í einhverju mafíósa dæmi að spila
við einhverja karlmenn!! Eftir það fórum við eitthvað að leika og
kvöldið endaði með pulsu á select!!!
Á fimmtudaginn seinasta!!!!!
PARTY HJÁ KOLBRÚNU!!!!! Hvar á maður að byrja..... þetta var
bara rosalegt hehehe

Ótrúlega gaman að hitta fólkið úr álftamýrarskóla og tjútta
með því! Hjörtur var ólmur í að ég myndi bera á hann body
lotion og eg sló til á kvikindið hehehehe var það ekki
þannig!? 

og Jóhannes Nordal eg þakka þer enn og aftur fyrir dansinn
okkar inní stofu sem við tókum uppúr 6 leitið um morguninn
hann var góður ég þu og bítlarnir eigum vel saman
Kvöldið endaði með því eða svona í morgunsárið að eg lá
ásamt sirka 5 góðkunningjum uppí hjónarúmi syngjandi meðan
kolbrún var að reyna að sofna inní sófa en það tókst að lokum
að reka þá í burtu og eg og kolbrún deildum nóttinni saman og
það var gott


Föstudagurinn núna!!!
AFMÆLI HJÁ HÖRPU! þetta var bara gaman eg á ekki eitt
aukatekið orð stelpur! Kvöldið byrjaði með þvi að við
hittumst kl sjö heima hjá Hörpu eg guðrún eva magga og kolbrún,
inga var beiler þetta kvöld og flúði til akureyrar ásamt pjásunni
henni írisi! já við hittumst þar og byrjuðum að spila og dansa og
gera okkur sætar og fínar fyrir hörkuskemmtun! Mikið gaman mikið
fjör þar til klukkan var hálf tíu þá var beinustu leið uppí Taxa og
fulla ferð niðrá Rosopomodoro !!! við fengum okkur væna slæsu af
pizzu og harpa fékk góðan afmælissöng frá mer og evu fyrir
framan alla á staðnum hehehe
og verð eg
að bæta því inn að þótt ótrúlegt sé þá skammaðist magga sín svo
mikið að hún var komin hálfa leið undir borð og svona rauð í
framan->
Eftir matinn þá settumst við í "reykhornið" og
hittum þar tvo fræga tónlistarmenn frá þýskalandi og 2 aðra
íslendinga sem voru að flytja þá inn og við vorum þar öll vel
í stuði að klæmast á þýsku sem var furðulegt en samt sem áður
mjöööög gaman, eftir gleðina kvöddum við þýskarana og vini
þeirra of hlupum niðrá pravda í tvítugsammæli hjá einhverjum
peyjum þar var gleðin í hámarki og eftir það þá komum við
okkur heim í kúrið....
frábært kvöld!
Laugardagurinn núna!!!
Ég var ein heima í tölvunni til klukkan eitthvað tólf á miðnætti
þegar Eva hringdí mig og bað mið að taka einn rúnt, eg hlýddi stóru
systir og við fórum og hittum par fjölbrautarskólans í ármúla (samt
ekki bjössa og bjögga) Atla og Foldu og deildum við þar dýrmætum
stundum saman og síðan skildust leiðir og eg og eva fórum í
eitthvað Pen15 party í kópavoginum og þar var bara mjög fínt! eg og
Harpa fórum á gróft trúnó inná baðinu þar sem er örugglega jafn
stórt og öll íbúðin mín og ekki nóg með það þá lögðumst við ofan í
baðið þar sem var eins og sundlaug! Síðan um 4 leitið fórum
við bara hjem í sengen!!!
Sunnudagurinn!!!
Ég Harpa Magga og Eva vorum heima hjá Hörpu og horfðum á mynd
með George Clooney sem er líka svona rosalega myndarlegur og lékum
síðan aðeins saman og slúðruðum úr okkur heilann! Síðan fórum við
eitthvað að rúnta og tókum svona 25 laugarvegi og sóttum alkann
hann Manna og skukkluðum honum síðan heim eftir ælu og
brjálsemi og síðan fór eg og Eva syss á select og fengum okkur
pulsu og þá voru allir ánægðir
Þetta er búið að vera fínt páskafrí, mikið um skemmtanir sem er
alltaf gaman!!!